Atburðarteljari

Auglýsing

Könnun

Eftir vorprófin þá vil að farið verði...

Vorprófin

Bekkjarsíður

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

OMG

21. ágúst 2007 klukkan 12:58
Hvenær ætlar þessi SJÚKLEGA FALLEGI BEKKUR að halda PARTÝ ???

PARTÝ
PARTÝ
PARTÝ




boltinn er hjá ykkur skats.
Nemandi í 4T
Engin athugasemd

Gillstuð: update :)

30. júlí 2007 klukkan 11:55
Ég og Anna ætlum að grilla í Heiðmörk næstkomandi miðvikudag. Þið megið (eigið) endilega koma. Ef það verða nógu margir vorum við að spá í að dreifa svona verkefnum á fólk (einn kemur með kol... etc. ) þannig þið látið okkur vita ef þið viljið koma. Veit heldur ekki hvort einhver skoðar þessa síðu þannig að þið verðið að spread the word!

smá update: Við ætlum að hittast á stað sem heitir Símamannalaut en það er "rétt innan við stærsta bílaplanið við Hraunslóð"... veit ekki meir, er bara að tippa á þennan stað :) ef þetta er upptekið þurfum við náttúrulega að færa okkur, þá hringjumst við bara á, en þetta hljómaði mest kósí. Við ætlum að mæta uppúr 8 þar sem flestir verða seinir, kveikja í kolunum og vera bara róleg á því. Mætið bara með grillmat ef þið viljið og svo ætla ég að koma með banana og co. sem þið megið fá. Ég kaupi 15 banana og ef þið eruð manneskja númer 16... þá aumingja þið. En segið öllum frá þessu þið tvö sem eruð að lesa þetta! Annars þarf ég að borða 15 banana og það er ekki hollt.
Kv. Katrín.

p.s. hér er smá fyrir Grease aðdáendurna í bekknum (ég veit þeir eru nokkrir ;) )
Nemandi í 4T
2 athugasemdir

bekkir

03. júlí 2007 klukkan 16:50
eruði ekki til í að skrifa hérna í hvaða bekki þið eruð að fara?
ég er allavega í 5M
anna
Nemandi í 4T
8 athugasemdir

grill

29. júní 2007 klukkan 13:33
er ekki stemmning fyrir að grilla saman annað kvöld ef veðrið heldur svona áfram?
Nemandi í 4T
3 athugasemdir

sólsól skín á mig

28. júní 2007 klukkan 17:58
nei hún gerir það sko aldeilis fokking ekki.
ég elska þegar það gleymist að hringja í afleysingafólk og maður þarf að vinna tvöfalda vakt, óvart, úbbosí, og maður fréttir það svona þegar maður er brosandi út að eyrum að labba heim í sólinni eftir hundleiðinlega vakt.
ég elska líka svona skerandi ískur í hlaupabrettum, það verður skemmtilegra með hverjum klukkutímanum, en þeir eru núna einmitt orðnir tólf.
ég var búin að skrifa blogg sem lýsir raunverulegum tilfinningum mínum á þessari stundu en strokaði það út þar sem ég tók þá ákvörðun í fyrradag að brosa í gegnum lífið. eða í gegnum tárin, réttara sagt, því eins og stelpurnar sem sáu mig rífast við fríðu leikfimistussu vita fer ég að gráta þegar mér er misboðið.
hafið góðan dag, ég er farin að sparka í eitthvað.
Nemandi í 4T
1 athugasemd

Partay!

18. júní 2007 klukkan 23:59


YO!!!!!!, ok the party is going to be at my place ( Grundarás 19 in Árbær )... yes THE CLASS should come around 7ish. if people are comming with you tell them to come later, i dont know how later but the class will eat dinner here and then party till the sun sets... witch it wont so.. Yeahh i dont really know anything else to say if you have any questions just call me 848 7722. SEE YOU FRIDAY!!
Nemandi í 4T
7 athugasemdir

VARÚÐ!!! Bannað innan 18 ára (sorrí Nína, ha-ha)

07. júní 2007 klukkan 01:41




Steinar er kominn í sumarfrí og sleppti villidýrinu í sér lausu!! Hann var ekki lengi að sleppa beislinu af sér lausu og skellti sér beint á bak á Mjallhvíti.

P.S. Í kjölfar þess eftir að myndasyrpan af Steinari og Mjallhvít birtist á netinui hafa gæða tímarit eins og Boys will be boys, Gay times, Electronic gay community magazine og Out and proud  haft samband við hann og óskað eftir því að fá að nota myndirnar, enda er þetta náttúrulega ekkert nema gæða hommaklám 
Nemandi í 4T
4 athugasemdir

Aumingja Kalli Bjarni

02. júní 2007 klukkan 16:30
Þetta er ekki blog.is en það  er alltaf gaman að taka svona mbl blogg:
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1272611
Fram kom í Fréttablaðinu að umræddur maður væri Kalli Bjarni sjálfur, fyrsta Idol-stjarna Íslands. Idolið ekki beint að gera kallinum gott, eða hvað? Hann er allavegana klárlega ekki gott ædol lengur. Kannski gott að þetta er hætt, þeir þyrftu að fara að gera bakgrunnstékk á öllum sem taka þátt. Myndu nú ekki vilja lenda í að fleiri glæpamenn yrðu ædolstjörnur.


Nemandi í 4T
2 athugasemdir

Birta Ara.

31. maí 2007 klukkan 16:19
Guðlaugur Þór keypti í gær fyrsta álfinn í hinni árlegu álfasölu SÁÁ. Á myndinni er einnig Birta Aradóttir.

Birta.  Ert þú ritarinn? Eða varstu bara óvart inn á myndinni?

-maggi
Nemandi í 4T
3 athugasemdir

Afmælis-prófloka-partý?

31. maí 2007 klukkan 01:08

Ójá þú last rétt! :D
Næsta föstudag (þ.e. 1. júní) verður partý heima hjá mér Kristrúnu vegna þess að
A) við erum búin í skólanum
B) ég átti afmæli (þ.e. 30. maí)
Ég þarf varla að taka það fram að það sterkasta sem verður drukkið í partýinu er íslenskt maltöl og ég mun draga upp nokkur gömul og góð samkvæmisspil, Útvegsspilið er þar fremst í flokki. Góðvinur okkar frá því í vetur ætlar líka að koma og vera með Brandarahorn Baldvins.
Djók.
Þið komið hvenær sem er eftir kl. níu um kvöldið, endilega komið með iPoda og geisladiska ef þið nennið. Ef einhver á iPod snúru væri hún líka vel þegin. :)
Þið þurfið ekki að koma með ykkar eigin bland þar sem að síðast þegar ég vissi var pabbi að skipuleggja innkaupaferð sem fólst meðal annars í því að tæma gosdeildina í Hagkaup hérna á Nesinu.
Ég á semsagt heima á Látraströnd 42 úti á seltj.nesi, ef þið villist (sem er ekkert ólíklegt af því að eins og sumir kannski muna þá eru öll húsin í götunni minni eins) hringið bara í mig og ég skal reyna að guida ykkur. Hversu áreiðanleg ég verð í þeim lýsingum fer samt svoldið eftir því hversu seint þið hringið.
Ókei nú ætla ég að fara að sofa, gamla fólkið á Grund greinilega búið að smita mig af gamlafólks-heilkenninu sem felst meðal annars í því að fá bara hluti eins og flannelnáttföt og inniskó í afmælisgjöf (check!) og að vera orðinn svo þreyttur kl. 1 að maður er kominn með svefngalsa (check!).
Sé ykkur vonandi sem flest á fös, vil helst ekki lenda í því að sitja uppi ein heima á föstudagskvöldi með ekkert nema 30 lítra af gosi til að drekkja sorgum mínum í. ;)
P.S. Ef ykkur langar að koma með afmælisgjöf handa mér þá er það velkomið, samt helst ekki meira appelsínuhúðarkrem.
Nemandi í 4T
4 athugasemdir